Stúdents-afmæli
  5 ára - 1981
  10 ára - 1986
  15 ára - 1991
  20 ára - 1996
  25 ára - 2001
  30 ára - 2006
  35 ára - 2011
  40 ára - 2016
  45 ára - 2021
  50 ára - 2026

 

 


 


25 ÁRA STÚDENTSAFMÆLI - 2001

Farið var í ferðalag um Vesturland og endað með kvöldverði á Akranesi.

Skoða myndir frá ferðalaginu um Vesturland.

Skoða myndir frá kaffihúsi í Stykkishólmi.

Skoða myndir frá skemmtuninni í Íþróttamiðstöð Akraness.

Fleiri myndir eru vel þegnar! Sendið til Önnu Heiðu.

Hér fyrir neðan er dagskráin fyrir 25 ára afmælið


„Sameinaðir ferðumst vér "

25. ára stúdentar frá MR 1976
á slóðir Eyrbyggja
19. maí 2001

Kæru stúdentssystkin

Jæja nú er að komast nokkuð skýr mynd á þá ferðaáætlun sem í gildi verður þann 19. maí þegar við afmælisstúdentar gerum okkur glaðan dag og leggjumst í ferðalag.

Upphaflegri ferðaáætlun hefur nokkuð verið kollvarpað enda miðaðist hún að mati fróðra manna við nokkuð stífa helgarferð.

Ferðalag í Stykkishólm og kvöldverður á Akranesi er pakki sem enginn í okkar hópi skyldi láta fram hjá sér fara. Þar gefst gullið tækifæri á að hittast að nýju, rifja upp gömlu dagana úr menntó og syngja vel valin rútubílalög. Undirbúningsnefndin reiknar með góðri þátttöku þeirra sem á Íslandi verða þennan dag.

Dagskrá:

Kl. 10:00

Stúdentar 1976 mæta við hina öldnu menntastofnun.

 

Kl. 10:15

Glæsivagnar Hópferðamiðstöðvarinnar leggja af stað frá MR.

 

Kl. 11:15

Áning í Borgarnesi.

 

Kl. 13:00    

Bjarnarhöfn, landnámsstaður Bjarnar austræna : Þar verður fræðst um hákarlaveiðar og forn bændakirkja skoðuð. Þar er hákarl og harðfiskur alltaf til sölu. Oddur Hjaltalín (1782-1840) læknir bjó í Bjarnarhöfn og hinn forspái sem og hinn skyggni smáskammtalæknir Þorleifur Þorleifsson (1801-1877).

 

Kl. 14:00         

Berserkjagata: Gengin verður hin forna gata sem Víga Styrr lét berserki sína ryðja og launaði þeim í lokin með því að láta drepa þá. Við Berserkjagötu er Berserkjadys.

 

Kl. 14:30

Stykkishólmur: Þar sem við reiknum með sérstaklega hagstæðu veðri er áætlað að snæða nesti í skógrækt bæjarins.

Gengið verður upp á Súgandisey og Þinghúshöfða en frá þessum stöðum má sjá vítt yfir þennan fallega verslunarstað auk þess sem Breiðafjörður blasir við.

Reiknað er með að afmælisstúdentar geti ráðið tíma sínum sjálfir að einhverju leyti og brugðið sér á kaffihús eða krá, skoðað kaþólska nunnusetrið, nýbyggða kirkju staðarins, heimsótt byggðasafnið í Norska-húsinu eða eitthvað annað áhugavert.

 

Kl. 17:00         

 

Glæsivagnar Hópferðamiðstöðvarinnar tilbúnir til brottfarar með afmælisstúdenta suður á bóginn yfir Kerlingarskarð fram hjá tveimur dysjum, gegnum Mýrar og á Akranes.

 

Kl. 18:45        

 

Akranes : Sameiginlegur kvöldverður í Íþróttamiðstöð Akraness. Okkar ágæti samstúdent, Gísli Gíslason bæjarstjóri, stýrir þessu hófi. Þar verður sungið og öllum frjálst að halda ræðu, fara með kvæði, eða leika leikrit.

 

Kl. 21:30  

Heimferð til Reykjavíkur að hinni öldnu menntastofnun.

 

Kl. 22:00         

 

Glæsivagnar Hópferðamiðstöðvarinnar „lenda" við MR

Verð kr. 6000. Innifalið : Rútuferð, kvöldverður á Akranesi, aðgangur að hákarlaverinu eða öðru sem hópurinn gæti þurft að greiða fyrir og framlag í gjöf stúdentsárgangsins til MR.

Gátlisti varðandi ferðina:

Góður skjólfatnaður
Nesti (bæði vott og þurrt)
nammipeningur
gott skap

Ath. Skólareglur MR eru ekki í gildi þennan dag.
Nemendur sem ítrekað brjóta af sér í ferðinni verða ekki sendir heim á kostnað foreldra. 

Þeir 25 ára stúdentar sem ekki komast í ferðalagið eru beðnir um að greiða kr. 2000 sem framlag í gjöf árgangsins til MR. Greiðist á bankareikning stúdenta MR 1976 nr.  515-26-9700 í Íslandsbanka. Reikningurinn ber kennitölu Skafta Harðarsonar, okkar trausta inspectors, en hún er eins og flestir muna 100956-3659

  Staðfestið þátttöku til ykkar fulltrúa í undirbúningsnefndinni fyrir 1. maí n.k.

Einnig þarf að staðfesta fyrir 1. maí þátttöku í nemendafagnaði MR á Hótel Íslandi þann 8. júní. Pétur Þorsteinsson mun þar halda ræðu fyrir hönd 25 ára stúdenta.  Miðaverð kr. 5.800

Skólaslit MR verða í Laugardalshöll fimmtudaginn 7. júní. Skafti Harðarson mun þar flytja ávarp fyrir hönd 25 ára stúdenta

 

 

Vefstjóri: Anna Heiða Pálsdóttir - anna@ritlist.is