Heim
  Bekkjarráðsmenn
  Stúdentsafmæli
  Gamlar myndir
  Bekkir
  Greinar
  Vefstjóri

 

 

 

Síðast uppfært:
Föstudaginn
26. maí 2006

 


STÚDENTAR FRÁ MR 1976

Þessi síða er í vinnslu þannig að ekki er víst að allar undirsíður birtist. Í millitíðinni eru allir beðnir að senda inn myndir, greinar og annað efni til að birta á síðunni.

Vel heppnað afmæli
Þann 20. maí sl. ók um 100 manna fríður hópur „gamalla“ stúdenta frá MR með tveimur grænum langferðabílum austur yfir heiðar. Veðrið lék ekki við fólkið - það snjóaði á köflum - sem lét það ekki á sig fá og vísiteraði merka staði í Ölfusi. Strandakirkja var skoðuð undir leiðsögn Önnu Heiðu Pálsdóttur en hún skrifaði bókina Galdrastafir og græn augu (1997) sem einmitt gerist í Selvogi. Þá var haldið að Eyrarbakka og Inga Lára Baldvinsdóttur sýndi samstúdentum heimabæ sinn og sagði okkur merkilegar sögur frá fortíð staðarins, m.a. eftirminnilegri heimsókn Danadrottningar fyrir stuttu.

Komið var við í Selinu en okkur til mikilla vonbrigða var húsið læst þannig að látið var nægja að gægjast á glugga. Ekki fer á milli mála að byggingin þarfnast gagngerrar endurnýjunar. Loks óku grænu rúturnar að Básum þar sem sest var við langborð og konur í víkingaklæðum báru mönnum veitingar sem voru vel þegnar. Guðjón B. Hilmarsson stóð sig vel sem veislustjóri og uppákomur voru skemmtilegar og fjölbreyttar. Bekkjarráðsmenn eiga þakkir skildar fyrir góða skipulagningu og mikla útsjónarsemi.
Mánudagur 22. maí 2006

 

 


Menntaskóllinn í Reykjavík

Gamli skólinn okkar er með góða vefsíðu sem gaman er að heimsækja. Líttu við.


 

Webmaster: Anna Heida Palsdottir - anna@ritlist.is